![Stóra stundin <br><small><I> Ninni Schulman</i></small></p>](http://uglautgafa.is/cdn/shop/files/StorastundinFRAMAN_{width}x.jpg?v=1708769527)
Nokkrum dögum fyrir aðfangadagskvöld finnast eldri hjón myrt á hrottalegan hátt á heimili sínu fyrir utan bæinn Hagfors. Við fyrstu sýn virðist um að ræða rán sem hefur farið úrskeiðis en frekari rannsókn lögregluparsins Berglund og Wilander leiðir í ljós undarlega og óþægilega málavexti.
Blaðakonan Magdalena Hansson er komin aftur til vinnu eftir langt veikindaleyfi og verður fljótlega þátttakandi í æsilegri morðrannsókn sem skekur bæinn.
Elín Guðmundsdóttir íslenskaði.
Stóra stundin er sjálfstæð bók í hinni margrómuðu Hagfors-seríu eftir sænsku glæpasagnadrottninguna Ninni Schulman. Hún er sjötta bókin sem kemur út eftir hana á íslensku. Hinar eru Stúlkan með snjóinn í hárinu, Leyndarmálið okkar, Velkomin heim, Þegar allar hklukkur stöðvast og Bara þú sem allar hafa fengið frábærar viðtökur íslenskra lesenda.
„Einn okkar fremsti glæpasagnahöfundur og samfélagsrýnir." – Kristianstadsbladet
„Í hæsta gæðaflokki glæpasagna.“ – Skånska Dagbladet
♥︎♥︎♥︎♥︎♥︎ – Femina
„Glæpaskáldskapur sem hefur upp á allt að bjóða.“ ★★★★ – Jyllands-Posten
Kilja – 595 bls.
Útgáfuár: 2024