![Sorgarsugan <br><small><i> Heine Bakkeid</i></small></p>](http://uglautgafa.is/cdn/shop/files/SorgarsuganFRAMAN_{width}x.jpg?v=1738424646)
Handhafi Riverton-verðlaunanna
Maður, sem tvívegis hefur reynt að drepa Thorkild Aske, bankar uppá hjá honum með óvenjulega bón. Maðurinn segist hafa fengið það verkefni að myrða fjórar manneskjur innan viku, að öðrum kosti muni átta ára gamall frændi hans verða drepinn. Hann vill fá hjálp Thorkilds við að ljúka verkefninu ...
Sorgarsugan er fimmta bókin í hinni rómuðu glæpaseríu um Thorkild Aske sem er af íslenskum ættum. Fyrstu bækurnar fjórar – Ég mun sakna þín á morgun, Hittumst í paradís, Við skulum ekki vaka og Refsiengill – hafa fengið hinar bestu viðtökur.
Magnús Þór Hafsteinsson íslenskaði.
Norski rithöfundurinn Heine Bakkeid hefur fengið mikið lof fyrir glæpasögur sínar sem hafa verið þýddar á fjölda tungumála.
***** „Einn allra besti glæpsagnahöfundur Noregs.“ Rundaberg 24
„Harðsonn stíll Heines Bakkeid hæfir vel snjöllum söguþræðinum.“ – Stavanger Aftenblad
„Það sem er sérstaklega skemmtilegt við bækur Bakkeiðs er stíllnn og myrki, hrái húmorinn. Bakkeid skrifar frábærlega vel og [skapar] persónur sem lifna við og maður finnur til samúðar með, jafnvel hinni niðurbrotnu sál Thorkilds Aske.“ – Krimlitteratur, Noregi
„Hinn nýi Jo Nesbö.“ –Verdens Gang
Kilja – 388 bls.
Útgáfuár: 2025