Tíu árum eftir að Jeanie Long var sakfelld fyrir morðið á hinni 15 ára gömlu Abigail Mantel koma fram upplýsingar sem sanna sakleysi hennar. En Jeanie treystir sér ekki til að horfast í augu við allt fólkið í þorpinu sem trúði því að hún gæti myrt unga stúlku og fremur sjálfsmorð áður en henni er sleppt úr fangaklefanum.
Það er ljóst að morðingi gengur laus og lögregluforinginn Vera Stanhope fer að svipast um í litla þorpinu. Þorpsbúar reynast varir um sig og órólegir, jafnvel fullir af sektarkennd. Þegar annað lík finnst tekur rannsókn lögreglunnar óvænta og ógnvekjandi stefnu ...
Ragnar Hauksson íslenskaði.
Bækur breska verðlaunahöfundarins Ann Cleeves um Veru Stanhope njóta mikilla vinsælda um allan heim. Þetta er ellefta bókin um Veru sem kemur út á íslensku
„Frábær lesning. Ann Cleeves kafar undir yfirborðið til að varpa ljósi á myrkrið sem getur grafið um sig í litlu samfélagi þar sem allir halda að þeir þekki leyndarmál hvers annars.“ – Val McDermid
„Hver elskar ekki ... Veru Stanhope, hispurslausa lögregluforingjann í sögum Ann Cleeves frá Norðymbralandi? Hún er þegar orðin ein af hinum ódauðlegu í heimi glæpasagnanna.“ – The New York Times
Kilja – 460 bls.
Útgáfuár: 2025