Sanna sagan um nefið á Gosa er syndsamlegt ævintýri fyrir fullorðin börn. Ef ekki hefði notið við Nikulásar II, síðasta Rússakeisara, Winstons Churchill, Vladímírs Pútín og Everts Bäckström, lögregluforingja í Stokkhólmi, hefðu atburðir þessarar skáldsögu aldrei gerst. Í þeim skilningi er þetta saga um afleiðingar gjörða fjögurra manna á yfir hundrað ára tímabili þar sem sá elsti var ráðinn af dögum fjörutíu árum áður en sá yngsti fæddist. Og eins og svo oft áður, óháð því í hvaða félagsskap eða samhengi hann er staddur er það enginn annar en Bäckström sem bindur enda á söguna.-
Sanna sagan um nefið á Gosa er þriðja bókin í seríunni skemmtilegu um litla, feita og fordómafulla letihauginn Evert Bäckström lögregluforingja sem með einhverjum óskiljanlegum hætti tekst jafnan að skjóta kollegum sínum ref fyrir rass.
Tilnefnd til hinna virtu CWA International Dagger-verðlauna í Bretlandi.
Jón Þ. Þór íslenskaði.
Bækur sænska verðlaunahöfundarins Leifs GW Persson hafa verið þýddar á yfir þrjátiu tungumál og hvarvetna hlotið frábærar viðtökur.
„Hraðinn, fléttan og ekki síst lýsingin á lögreglustörfunum verður til þess að þessar rúmlega 600 síður fljúga áfram.“ Svenska Dagbladet
„Persson í hörkuformi … Biksvört og snjöll skemmtun.“ Dagsavisen
„Leif GW Persson tekst að skrifa um dónaskap Bäckströms á þann hátt að lesandinn hlær upphátt.… í þessari bók blómstrar ímyndunarafl hans og ótrúlegur hæfileiki að byggja upp flókinn söguþráð. Þetta er eins og að fylgjast með fimum listamanni kasta hverjum boltanum á fætur öðrum upp í loftið á meðan maður heldur niðri í sér andanum og býst við mistökum – en nei! Allir boltarnir lenda nákvæmlega þar sem þeir eiga að lenda, allt smellur saman og maður getur ekki annað en klappað.“ Dagens Nyheter
Kilja – 637 bls.
Útgáfuár: 2026