Lygin <br><small><i> Eyðun Klakstein</i></small></p>

Lygin
Eyðun Klakstein

Translation missing: is.products.product.regular_price
4.499 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
4.499 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Daginn eftir skyndilegt andlát bróður síns fær Sara Emmudóttir dularfullt bréf. Það verður til þess að hún fer að kafa í fortíð sem hún hafði flúið. Við sögu koma meðal annars rokktónleikar í Þórshöfn tuttugu árum fyrr þar sem ung kona lét lífið.

Dularfullur maður gengur á fund galleríeigandans Jóns Amos og biður hann að finna listaverk sem enginn kannast við. Skyndilega verða ógnvænlegir atburðir sem tefla lífi hans í hættu.

Sara og Jón neyðast til að taka höndum saman í leit að köldum sannleikanum og fletta ofan af lygum fortíðar.

Hjálmar Árnason Waag íslenskaði.

Færeyski rithöfundurinn Eyðun Klakstein (1972–) lauk háskólaprófi í blaðamennsku frá Danmörku. Í aldarfjórðung starfaði hann sem blaðamaður og ritstjóri, auk þess að annast þáttargerð fyrir útvarp og sjónvarp. Þá heldur hann úti vinsælum hlaðvarpsþætti. Hann hefur skrifað tvær glæpasögur með þjóðfélagslegu ívafi sem slegið hafa í gegn í Færeyjum og koma von bráðar út í Danmörku.

Kilja – 260 bls.

Útgáfuár: 2024