MORÐIN Í ÅRE
Glæpahöfundur ársins í Svíþjóð 2024
Dularfull andlát meðal aldraðra á Åre-svæðinu, sænsku Ölpunum, vekja grunsemdir lögreglukonunnar Hönnu Ahlander um að ekki sé allt með felldu. Sívaxandi togstreita í sambandi hennar og Daniels Lindskog, nánasta samstarfsmanns hennar, gerir þeim hins vegar erfitt að einbeita sér að fullu að rannsókn málsins. En klukkan tifar og til að koma í veg fyrir fleiri dauðsföll verða þau að leysa úr ágreiningsefnunum og vera samstiga í rannsókninni.
Elín Guðmundsdóttir íslenskaði.
Líknarinn er fimmta bókin í hinni æsispennandi seríu MORÐIN Í ÅRE. Fyrri bækurnar, Helkuldi, Daladrungi, Yfirbót og Mýrarljós, hafa fengið frábærar viðtökur.
Vivica Sten er einn virtasti glæpasagnahöfundur Norðurlanda. Bókaflokkur hennar um MORÐIN Í ÅRE hefur slegið í gegn og hefur Netflix hefur nú gert sjónvarpsþáttaröð byggða á bókunum. Mjög vinsælir sjónvarpsþættir voru líka gerðir um Sandhamn-bókaflokkinn.
„Viveca Sten er einn vinsælasti glæpasagnahöfundur Svíþjóðar og hún kann að segja sögu sem fær mann til að fá hroll þegar einmana eldri borgari heyrir í dyrabjöllunni ...“ – Dagens Nyheter
„Viveca Sten skrifar glæpasögur í hæsta gæðaflokki. Hún leggur mikla alúð við persónusköpun, tvinnar saman ólíka söguþræði án þess að það bitni á spennunni allt til hádramatískra endaloka.“ – Sænska glæpasagnaakademían
Kilja – 428 bls.
Útgáfuár: 2026