Landamæralaus <br><small><i>Jørn Lier Horst</i></small></p>

Landamæralaus
Jørn Lier Horst

4.799 kr
4.799 kr
VSK er innifalinn. Heimsendingarkostnaður er innifalinn í verði ef verslað er fyrir 5.000,- eða meira. Annars er það 1.500,-

Yfirgefin bifreið við vegkant hverfur hægt sjónum eftir því sem fannfergið eykst. Inni í bílnum er svar við flókinni morðgátu sem enn er óleyst.

Hópur fólks hefur tekið sig saman á netinu um að vinna saman að því að leysa óleyst sakamál. Stjórnandi hópsins hefur samband við Wisting lögregluforingja vegna rannsóknar á morði á áströlskum bakpokaferðalangi í Noregi. Einn virkasti meðlimur hópsins, Astria, kveðst vera norsk. Þegar hún skýrir frá því að hún sé við það að leysa málið, hverfur hún af netinu og enginn í hópnum hefur heyrt frá henni síðan.

Án þess að ætla sér það laðast Wisting að þessari óhefðbundnu rannsókn. En vísbendingarnar reynast margar og óljóst hvert þær leiða ...

Tilnefning til Petrona-verðlaunanna sem besta norræna glæpasagan í Bretlandi.

Magnús Þór Hafsteinsson íslenskaði.

Metsöluhöfundurinn Jørn Lier Horst (1970) var háttsettur rannsóknalögreglumaður í Noregi en frá 2023 hefur hann einvörðungu sinnt ritstörfum. Bækur hans um William Wisting hafa selst í milljónum eintaka. Þær hafa verið þýddar á fjölda tungumála og vinsælar sjónvarpsþáttaraðir hafa verið gerðar eftir þeim.

„Hárfínn og úthugsaður söguþráður.“  VERDENS GANG

5-teningar  „Hér fá allir aðdáendur Wistings mikið fyrir sinn snúð.“ TVEDESTRANDPOSTEN

„Æsispennandi morðingjaleit með nýjustu tækni!“ FEMINA

Kilja – 431 bls.

Útgáfuár: 2026