Innsta herbergið <br><small><i>Jørn Lier Horst</i></small></p>

Innsta herbergið
Jørn Lier Horst

4.299 kr
4.299 kr
VSK er innifalinn. Heimsendingarkostnaður er innifalinn í verði ef verslað er fyrir 5.000,- eða meira. Annars er það 1.500,-

Lögregluforinginn William Wisting er kallaður í skyndi til fundar við ríkislögmann Noregs. Í sumarhúsi nýlátins og mikilsmetins stjórnmálamanns hafa fundist vísbendingar sem kunna að ógna þjóðaröryggi. Þess er gætt að rannsóknin á þessum vísbendingum fari fram fyrir luktum dyrum. Fljótlega kemur þó á daginn að hér er um glæpamál að ræða fremur en stjórnmálaspillingu. Óleyst sakamál reynast tengjast stjórnmálamanninum, svo sem óupplýst mannshvarf og stórt peningarán. Wisting stendur frammi fyrir erfiðu máli þar sem grafa verður djúpt í fortíðina og ólíklegasta fólk hefur ýmislegt að fela.

Bækur norska metsöluhöfundarins Jørns Lier Horst um lögregluforingjann William Wisting hafa um langt árabil verið meðal vinsælustu glæpasagna Norðurlanda og þýddar á fjölda tungumála.

Magnús Þór Hafsteinsson þýddi.

 „Æsispennandi frá upphafi til enda.“ – Sunday Times

„Bækur Jørns Lier Horst eru allar í hæsta gæðaflokki ... Hann er ef til vill sá glæpasagnahöfundur Noregs sem kann best til verka.“ – Dagbladet

 „Einn allra besti norræni glæpasagnahöfundurinn.“ – The Times

 „Klassísk ráðgáta skrifuð á frábærlega spennuþrunginn hátt.“ – Ystads Allehanda

 * * * * * ­ – Fædrelandsvennen

Kilja – 421 bls.

Útgáfuár: 2023