Heimavistarmorðin <br><small><i>Ryan Green</i></small></p>

Heimavistarmorðin
Ryan Green

Translation missing: is.products.product.regular_price
2.999 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
2.999 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

SÖNN SAKAMÁL 3

Ógleymanlegir glæpir Richards Speck

Að kvöldi 13. júlí 1966 braust Richard Speck inn í heimavist hjúkrunarfræðinema við götu eina í Chicago í Bandaríkjunum. Hann var ölvaður en virtist þó mjög yfirvegaður í athöfnum sínum. Hann vakti nemana, sem voru allt ungar konur, safnaði þeim saman í eitt herbergi og skipaði þeim að láta peninga sína af hendi, þá myndi hann ekki vinna þeim mein.

Þegar hann hafði fengið peningana í hendur batt hann stúlkurnar fastar með rúmlökum. Síðan leiddi hann eina þeirra í annað herbergi „til að tala“ þótt annað vekti fyrir honum. Atburðarásin tók svo óvænta stefnu þegar tveir nemar, sem ekki höfðu verið heima, komu Speck skyndilega að óvörum.

Það sem gerðist næstu klukkustundir vakti óhug út um öll Bandaríkin.

Heimavistarmorðin er hrollvekjandi frásögn af einu óhugnanlegasta glæpamáli sögunnar, sögð á kraftmikinn og lifandi hátt eins og í bestu spennusögu.

Þórdís Bachmann þýddi.

„Ryan Green er ótrúlegur sagnamaður ... hann segir ekki aðeins söguna eins og hún gerðist heldur gerir lesandann að þátttakanda í henni.“ – Blackbird

*  *  *  *  *

„Ég get ekki beðið eftir að lesa meira eftir þennan höfund.“ – amazon.com

Kilja – 160 bls.

Útgáfuár: 2021