Haugbúi<br><small><i>Johan Theorin</i></small></p>

Haugbúi
Johan Theorin

Translation missing: is.products.product.regular_price
3.499 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
3.499 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Gerlof Davidsson, gamli skútuskipstjórinn, hrökk upp um miðja nótt við barsmíð á hurðina á sjóbúðinni. Dauðhræddur strákur skjögraði inn og sagði frá skipi fullu af deyjandi sjómönnum og óðum manni með öxi.

Þetta gerðist í byrjun æsilegs sumars á Norður-Ölandi þegar tugþúsundir ferðamanna komu til eyjarinnar til að fagna Jónsmessunni. Einn ferðamannanna var að snúa heim eftir langdvöl í öðru landi til að krefjast uppgjörs á gamalli skuld — og hann skilur eftir sig blóðuga slóð.

Engan nema Gerlof grunar hver þessi ferðamaður er og hvers vegna hann vill hefna sín á heilli fjölskyldu. Gerlof er sá eini sem hefur hitt manninn áður og það var þegar þeir voru báðir ungir, stóðu í kirkjugarðinum og heyrðu högg berast úr kistu sem lá  í nýtekinn gröf ...

Hinar mögnuðu og æsispennandi skáldsögur sænska verðlaunahöfundarins Johans Theorins, sem gerast á Ölandi, hafa farið sigurför um heiminn og verið þýddar á fleiri en 25 tungumál. Haugbúi er fjórða bókin í flokknum, en áður eru út komnar bækurnar HvarfiðNáttbál og Steinblóð, sem allar hafa fengið hinar bestu viðtökur íslenskra lesenda.

Elín Guðmundsdóttir þýddi.

„Höfundur í heimsklassa.“ – Crimezone.nl

Kilja – 464 bls.

Útgáfuár: 2015