Fárviðrið <br><small><i>Ann Cleeves</i></small></p>

Fárviðrið
Ann Cleeves

4,799 kr
4,799 kr
VSK er innifalinn. Heimsendingarkostnaður er innifalinn í verði ef verslað er fyrir 5.000,- eða meira. Annars er það 1.500,-

Þegar sæfarinn og ævintýramaðurinn Jem Rosco birtist  óvænt í bænum Greystone í Devon vekur það óskipta athygli. En skömmu síðar hverfur hann sporlaust. Lík hans finnst í litlum  báti undan Scully Cove, vík sem er sveipuð þjóðsagnakenndri  dulúðdulúð.

Rannsókn málsins reynist rannsóknarlögreglumanninum Matthew Venn erfið vegna fortíðar hans í Greystone. Þegar annað  lík finnst þarf Venn að horfast í augu við myrk leyndarmál samfélagsins. Brátt verður ljóst að enginn er óhultur fyrir  ískyggilegum afleiðingum af þeim.

Friðrika Benónýsdóttir íslenskaði.

Ann Cleeves er einn virtasti glæpasagnahöfundur heims. Verðlaunabækur hennar um lögregluforingjana Jimmy Perez  (Shetland) og Veru  Stanhope hafa notið mikilla vinsælda. Fárviðrið er þriðja bókin í bókaflokki Cleeves um lögregluforingjann Matthew Venn. Fyrri bækurnar í seríunni, Fuglinn í fjörunni og Kvein gráhegrans, fengu frábærar viðtökur.

Kilja – 418 bls.

Útgáfuár: 2026