
Jeppe Kørner er í leyfi á eyjunni Borgundarhólmi og Anette Werner er því einni falið að stýra rannsókninni á sundurlimuðu líki sem fannst í tösku grafinni í jörð á leikvelli í miðbænum. Rithöfundurinn Esther de Laurenti kemur við sögu og brátt kemur Jeppe líka til skjalanna og við tekur rannsókn á ískyggilegu leyndarmáli sem á rætur í fortíðinni og tengist Borgundarhólmi.
Eyja er fjórða bókin sem kemur út á íslensku í Kaupmannahafnarseríunni eftir Katrine Engberg um lögregluforingjana Jeppe Kørner og Anette Werner. Bækurnar hafa slegið í gegn og vermt efstu sæti vinsældalista víða um heim.
Tilnefnd til Mofibo-verðlaunanna sem glæpasaga ársins í Danmörku.
Friðrika Benónýsdóttir þýddi.
„Nordic noir-meistaraverk.“ – Booklist
„Þessi bók heltekur mann.“ – Publishers Weekly
„Engberg skrifar af miklum krafti og lifandi stíls máti hennar nýtur sín í ljóðrænum lýs-ingum og lúmskum, stríðlyndum húmor ... Fáir eru henni fremri í að búa til flott plott.“ – Berlingske Tidende
Kilja – 355 bls.
Útgáfuár: 2025