
Thorkild Aske, fyrrverandi yfirmaður í innra eftirliti norsku lögreglunnar, er nýsloppinn úr fangelsi eftir dóm fyrir manndráp af gáleysi. Þjáður af sektarkennd, atvinnulaus og á kafi í lyfjaneyslu þarf hann að finna sér nýtt starf. Fortíðin leitar hann uppi og fyrr en varir er hann flæktur í rannsókn á dullarfullum mannshvörfum í Troms í Norður-Noregi. Hauststormarnir æða og skammdegið hellist yfir í æsispennandi og hrollvekjandi atburðarás — í umhverfi sem er Íslendingum kunnuglegt.
Ég mun sakna þín á morgun er fyrsta bókin í magnþrungnum spennusagnaflokki um lögregluforingjann Thorkild Aske sem er af íslenskum ættum.
Norski rithöfundurinn Heine Bakkeid (f. 1974) hefur fengið mikið lof fyrir glæpasögur sínar sem hafa verið þýddar á fjölda tungumála.
Magnús Þór Hafsteinsson þýddi.
„Stephen King hefur eignast arftaka í Noregi.“ – Extra Bladet
„Dásamlega hrollvekjandi saga.“ – Daily Mail
Kilja – 335 bls.
Útgáfuár: 2020