Í dimmum skógum sænsku Smálandanna, á bökkum stöðuvatns sem nefnist Råsjön, er gamalt sumarbústaðahverfi. Eitt sinn var þar fjölmenni á sumrin, fólk synti áhyggjulaust í vatninu, baðaði sig í sólinni og dvaldi úti á björtum sumarnóttum. En nú standa litlu rauðu bústaðirnir auðir og yfirgefnir, enginn kemur þangað lengur til dvalar. Nema Pernilla Stål. Hún kemur á hverju hausti til að sefa óróann sem hefur grafið um sig innra með henni frá því hún upplifði dauðsföllin þarna á unglingsaldri. En þetta haust er Pernilla ekki einsömul ...
Hrollvekjandi spennusaga þar sem skuggar fortíðar og gamlar sagnir öðlast líf.
Elín Guðmundsdóttir íslenskaði.
Öland-sagnabálkur sænska verðlaunahöfundarins Johans Theorin hefur farið sigurför um heiminn og verið þýddur á fjölda tungumála. Bústaðirnir er sjálfstæð glæpasaga eftir Theorin, rétt eins og Hælið sem fékk frábærar viðtökur íslenskra lesenda.
„Johan Theorin er meistari í að skapa andrúmsloft óvissu og spennu.“ Ölandsbladet
„Í þessari bók gerir Theorin meira úr hinu yfirnáttúrulega en í fyrri bókum. Það er erfitt verk, en honum tekst að gera það á aðdáunarverðan og snjallan hátt.“ Kapprakt.se
„Afar fáir höfundar eru jafnokar Johans Theorin í að tengja saman með tilþrifum glæparannsókn, umhverfi, persónusköpun og sögulega atburði.“ Dagens Nyheter
Kilja – 428 bls.
Útgáfuár: 2026