Böðulskossinn <br><small><i>Mons Kallentoft</i></small></p>

Böðulskossinn
Mons Kallentoft

Translation missing: is.products.product.regular_price
3.499 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
3.499 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Malin Fors er komin aftur til Linköping eftir viðburðaríkan tíma í Bangkok. Hún er varla búin að koma sér fyrir þegar flugvöllurinn í Linköping verður vettvangur stærstu gíslatöku í sögu Svíþjóðar. Malin og samstarfsmenn hennar standa frammi fyrir þeirri siðferðilegu spurningu hvort réttlætanlegt sé að fórna fáum mannslífum í von um að bjarga mörgum. Um sumarið skellur á grimmileg ofbeldisalda í Linköping. Malin og félagar eltast við morðingja sem virðist alltaf vera skrefi á undan ...

Mons Kallentoft er einn af þekktustu rithöfundum Svíþjóðar. Ritröð hans um Malin Fors, lögregluforingja í Linköping, hefur notið mikilla vinsælda víða um lönd. Böðulskossinn er ellefta bókin um Malin Fors en hinar tíuSumardauðinn, Haustfórn, Vetrarblóð, Vorlík, Fimmta árstíðin, Englar vatnsins, Sálir vindsins, Moldrok, Brennuvargar og Vítisfnykur — hafa selst í milljónum eintaka og verið þýddar á hátt í 30 tungumál.

Jón Þ. Þór þýddi.

„Kallentoft kann þá list að búa til spennandi söguþráð og hér bregst honum ekki bogalistinn.“  – Ölandsbladet

Kallentoft er einn allra besti glæpahöfundur samtímans. Kannski hefur hann aldrei verið betri en í þessari bók?“ – DAST Magazine

„... spennandi, hröð og áhrifamikil ...“ – Johannas deckarhörna

„Þétt og æsispennandi glæpasaga ... Þetta er ellefta bókin í Malin Fors-seríunni og enn sömu gæði og í þeim fyrstu. Ég bíð óþreyjufull eftir bók númer tólf.“ – Ljudboksbloggen

Kilja – 407 bls.

Útgáfuár: 2022