FJÓRÐA BÓKIN Í SÖNG UM ÍS OG ELD.
Lannisterarnir eru við völd og hafa hreiðrað um sig í Járnhásætinu.
En dagar svika og blóðsúthellinga eru langt í frá liðnir. Úr öskustó stríðs kvikna nýir eldar. Glæfraleg launráð stefna Westeros í voða. Í vændum eru grimmileg átök um völd og áhrif.
Nýtt bindi í hinum magnþrungna sagnabálki, sem kenndur er við fyrstu bók bálksins, Game of Thrones, eftir geysivinsælum sjónvarpsþáttum, en þeir eru meðal annars teknir upp á Íslandi.
Elín Guðmundsdóttir þýddi.
„George R.R. Martin á engan sinn líka í heimi fantasíunnar.“ – Sunday Times
„Tröllaukinn og stórkostlegur sagnabálkur … George R.R. Martin hefur skapað heillandi og margslungna veröld sem minnir á heim Rósastríðanna eða Rómaveldis.“ – SFX
Kilja – 900 bls.
Útgáfuár: 2016