Landnámssögur við þjóðveginn<br><small><i>Jón R. Hjálmarsson</i></small></p>

Landnámssögur við þjóðveginn
Jón R. Hjálmarsson

Translation missing: is.products.product.regular_price
3.999 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
3.999 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Sögur af landnámsmönnum Íslands og heimkynnum þeirra víðs vegar um landið.

Á ferð um landið er tilvalið að fræðast um sögu þess og menningu. Í þessari einstöku vegahandbók slæst fræðaþulurinn Jón R. Hjálmarsson í för með lesandanum um byggðir landsins. Ferðalagið hefst í Reykjavík, þar sem fyrsti landnámsmaðurinn settist að, og síðan er haldið vestur, norður, austur og suður eftir hringveginum og ýmsum leiðum út frá honum.

Við kynnumst ekki aðeins þeim frægustu — Ingólfi, Skalla-Grími, Hrafna-Flóka og Auði djúpúðgu — heldur einnig ýmsum minna þekktum, svo sem Önundi breiðskegg, Katli gufu, Þóri dúfunefi, Hrolleifi mikla og ekkjunni Þorgerði.

Fróðleg og skemmtileg vegahandbók þar sem sagðar eru sögur  af fornfrægum landnámsmönnum og heimkynnum þeirra.

Jón R. Hjálmarsson er sagnfræðingur og fyrrverandi skólastjóri og fræðslustjóri. Fyrri þjóðvegabækur hans, svo sem Þjóðsögur við þjóðveginn og Draugasögur við þjóðveginn, hafa notið mikilla vinsælda.

Innbundin – 228 bls.

Útgáfuár: 2018