Fjölmiðlar 2007 ><i>Ólafur Teitur Guðnason</i></small></p>

Fjölmiðlar 2007 >Ólafur Teitur Guðnason

Translation missing: is.products.product.regular_price
2.499 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
2.499 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Áhrif fjölmiðla eru mikil, en lengst af hafa þeir búið við lítið sem ekkert faglegt aðhald. Á þessu varð markverð breyting í upphafi árs 2004 þegar Ólafur Teitur Guðnason hóf að skrifa vikulega fjölmiðlapistla í Viðskiptablaðið.

Pistlar Ólafs eru snarpir og beinskeyttir og hafa vakið mikla athygli, enda hefur höfundurinn verið óhræddur við að taka kollega sína á beinið. 

Fjölmiðlapistlar Ólafs koma nú út á bók fjórða árið í röð. Bókin Fjölmiðlar 2007 geymir alla fjölmiðlapistla Ólafs Teits árið 2007 og er óhætt að segja að hún bregði upp einstakri mynd af blaðamennsku á Íslandi á viðburðaríku ári.

Í bókinni eru rakin ítarlega fjölmörg dæmi um undarleg, hæpin, vafasöm og ámælisverð vinnubrögð fréttamanna. Í ljós kemur að fjölmiðlum veitir svo sannarlega ekki af því aðhaldi sem þeim er ætlað öðrum.

Kilja – 288 bls.

Útgáfuár: 2009