
Enginn vissi í raun hver Gatsby var.
Sumir sögðu að hann hefði verið þýskur njósnari, aðrir að hann væri skyldur evrópsku kóngafólki. En allir nutu frábærrar gestrisni hans. Í íburðarmiklum húsakynnum á Long Island-eyju í New York hélt hann frægar veislur. Fæstir gestanna þekktu þó gestgjafann í sjón. Það var eins og hann stæði utan við tíma og rúm.
Áhrifamikil lýsing á miklum velmegunartíma, djass-áratugnum — glysi og glaumi, tálsýnum og dvínandi siðferðisþrótti.
Eitt af meistaraverkum heimsbókmenntanna og jafnframt ein vinsælasta skáldsaga síðari tíma.
Innbundin – 234 bls.
Útgáfuár: 2008