Leiðin í Klukknaríki <br><small><i> Harry Martinson </i></small></p>

Leiðin í Klukknaríki
Harry Martinson

Translation missing: is.products.product.regular_price
5.499 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
5.499 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Í miðdepli Leiðarinnar í Klukknaríki er förumaðurinn Bolle og flakk hans um þá Svíþjóð sem iðnvæðingin er að umturna. En kringum Bolle vefur Harry Martinson net úr atvikum sem smám saman bregður upp fyrir okkur allri veröld flakkaranna: Endlausum malarvegum og unaðsfögru landslagi, ótta búfastra við lausingja en líka viðmóti fólksins í gjafagörðum, að ónefndum félögum Bolle, Langintesi, Vegryki og heimspekingnum Sandemar, svo að einhverjir séu nefndir. Það er fyrir þessa förumenn og frelsisdrauma þeirra sem hjarta Martinsons slær.

Með ótrúlegri nákvæmni endurskapar Martinsson heim sem er að hverfa en vekur líka umræðurnar um möguleikana á að lifa á jaðri samfélagsins en halda samt á lofti þeim lífsgildum sem eru jafn brýn nú á tímum og þegar bókin kom fyrst út árið 1948.

Eitt af meistaraverkum sænskra bókmennta eftir Nóbelsskáldið Harry Martinson í afbragðsþýðingu Heimis Pálssonar.

Innbundin – 440 bls.

Útgáfuár: 2020