Amma Ímamú kemur í heimsókn alla leið frá Afríku og er ekki skemmt þegar hún sér að Bold-fjölskyldan er farin að apa allt eftir mannfólkinu. Hún ákveður að breyta þessu og fá barnabörnin sín til að haga sér eins og alvöru híenur – jafnvel í skólanum.
Og þá fyrst byrjar nú ballið ...
Fimmta bókin um Bold-fjölskylduna eftir breska grínistann Julian Clary með frábærum teikningum á hverri síðu.
Fyndnasta bók ársins!
Magnús Jökull Sigurjónsson þýddi.
Innbundin – 297 bls.
Útgáfuár: 2022