Eftirmáli <br><small><i> Cecelia Ahern</i></small></p>

Eftirmáli
Cecelia Ahern

4.799 kr
4.799 kr
VSK er innifalinn. Heimsendingarkostnaður er innifalinn í verði ef verslað er fyrir 5.000,- eða meira. Annars er það 1.500,-

FRAMHALD METSÖLUBÓKARINNAR P.S. ÉG ELSKA ÞIG

Ástin lifir að eilífu!

Sjö ár eru frá andláti Gerrys og sex ár síðan Holly las hinstu kveðjuna frá honum. Hún hefur haldið áfram með líf sitt en þegar systir hennar biður hana um að segja frá P.s. Ég elska þig-bréfunum í hlaðvarpsþætti lætur hún ófús undan. Hún vill síst af öllu rífa upp gömul sár.

En eftir að þátturinn er sendur út fer dauðvona fólk að hafa samband við Holly. Það vill skilja eftir skilaboð handa sínum nánustu. Skyndilega dregst Holly aftur inn í heim sem hún hefur lagt hart að sér að kveðja – en sá heimur leiðir hana í nýja og ótrúlega vegferð.

Með hinni frábæru blöndu af rómantík, húmor og lífslærdómi, sem einkennir bækur Ceceliu Ahern, er Eftirmáli fullkomið framhald metsölubókarinnar P.s. Ég elska þig.

Skáldsögur írska rithöfundarins Cecelia Ahern hafa komið út í 40 löndum og selst í meira en 25 milljónum eintaka.

„Hittir beint í hjartastað.“ Kirkus Review

„Áhrifamikil.“ People

Kilja – 320 bls.

Útgáfuár: 2026