Þetta virtist ætla að verða fullkominn brúðkaupsdagur ... þangað til bílstjórinn var beðinn um að aka með brúðurina einn hring í viðbót ...
Lottie er ein af gestunum. Allt í einu sér hún Max bregða fyrir. Hún hafði ekki hitt hann í fimmtán ár eða frá því óvænt atvik urðu til þess að það slitnaði upp úr ástarsambandi þeirra ...
Freya stendur í þakkarskuld við Cameron. En hún elskar hann ekki. Sem er óheppilegt þar sem þau eru í þann mund að ganga í hjónaband ...
Ruby hefur verið hin fullkomna eiginkona. En ekkert verður samt eftir að hún uppgötvar sannleikann um eiginmann sinn ...
Ást, vinátta og leyndarmál afhjúpuð í steikjandi sól við skínandi blátt hafið í Cornwall ...
Enski verðlaunahöfundurinn Jill Mansell hefur selt meira en 14 milljónir eintaka af bókum sínum – og er einn allra virtasti og vinsælasti höfundur ljúflestrarbóka í heiminum.
Snjólaug Bragadóttir íslenskaði.
Enski verðlaunahöfundurinn Jill Mansell hefur selt hátt í 14 milljónir eintaka af bókum sínum – og er einn allra vinsælasti höfundur ljúflestrarbóka í heiminum.
Kilja – 325 bls.
Útgáfuár: 2026