Ætti ég að segja þér það? <br><small><i>Jill Mansell</i></small></p>

Ætti ég að segja þér það?
Jill Mansell

Translation missing: is.products.product.regular_price
4.499 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
4.499 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

„Drottning hinna ljúfu og hrífandi ástarsagna.“ – Red Online

Amber, Lachlan og Raffaele kynntust á unglingsaldri á heimili góðhjartaðra fósturforeldra í Cornwall á Englandi og hafa haldið nánu sambandi. 

Amber á sér leyndarmál. Hún er ástfanginn af Lachlan en hann sýnist ekki vera týpan sem vill festa ráð sitt.

Raffaele hélt hann hefði fundið draumakærustuna í Vee en samt fór allt úrskeiðis milli þeirra. Var Vee að fela eitthvað fyrir honum?

Fósturpabbinn Teddy hefur fundið ástina á ný. En er hin unga og heillandi draumadís hans öll þar sem hún er séð?

Á bak við glitrandi hafið og sólríkan himininn í Cornwall getur allt gerst.

Snjólaug Bragadóttir íslenskaði.

Enski verðlaunahöfundurinn Jill Mansell hefur selt hátt í 14 milljónir eintaka af bókum sínum og er einn allra vinsælasti höfundur ljúflestrarbóka í heiminum.

Hvílík bók – stórkostleg!“ – Marian Keyes

„Jill Mansell er drottning feelgood-ástarsagnanna ... fyndin og hugljúf saga um vináttu, fjölskyldu og ævarandi ást.“ – Sunday Express

„Hvílík leiftrandi og skemmtileg lesning! Jill er algjör drottning að skapa persónur sem maður vill strax vingast við..“ – Philippa Ashley

Kilja – 370 bls.

Útgáfuár: 2024