Nákuldi <br><small><i> Ann Cleeves</i></small></p>

Nákuldi
Ann Cleeves

Translation missing: is.products.product.regular_price
4.299 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
4.299 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Á dimmum vetrardögum á Hjaltlandi veldur úrhellisrigning geysimikilli aurskriðu.

Við greftrun gamls vinar verður Jimmy Perez vitni að því þegar leðjan og móríkt vatnið hrífa með sér gamalt smábýli. Í rústunum finnur Perez lík dökkhærðrar konu í rauðum silkikjól. Fljótlega kemur í ljós að hún hafði dáið áður en skriðan féll. En hver var hún og hvernig bar dauða hennar að?

Ann Cleeves er einn virtasti glæpasagnahöfundur heims. Bækur hennar um lögregluforingjann Jimmy Perez, sem gerast á Hjaltlandseyjum (Shetland), hafa slegið í gegn. Breska ríkissjónvarpið, BBC, hefur gert vandaða sjónvarpsþætti eftir sögunum sem njóta mikilla vinsælda víða um heim.

Snjólaug Bragadóttir þýddi.

„Afar fáir rithöfundar í heiminum eru fremri Ann Cleeves í persónusköpun.“ – Daily Express

„Ein allra eftirminnilegasta bókin í Shetland-seríunni.“ – Financial Times 

„Enginn núlifandi höfundur tekur Ann Cleeves fram í landslagslýsingum.“ – Guardian

Kilja – 396 bls.

Útgáfuár: 2023