Hin myrku djúp<br><small><i>Ann Cleeves</i></small></p>

Hin myrku djúp
Ann Cleeves

Translation missing: is.products.product.regular_price
3.999 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
3.999 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Þegar Julie Armstrong kemur heim til sín seint um kvöld eftir að hafa farið út að skemmta sér finnur hún sér til skelfingar son sinn í baðkarinu þakinn blómum. Hann hafði verið kyrktur. Nokkru síðar finnst lík af ungri kennslukonu í náttúrulaug og hafði blómum sömuleiðis verið sáldrað yfir líkama hennar. Lögregluforinginn Vera Stanhop í Northumberland á Englandi rannsakar málið. Morðin verða til þess að heimamenn taka að ljóstra upp sínum myrkustu leyndarmálum. Morðinginn fylgist með og bíður færis að undirbúa nýja vota blómagröf ...

Bækurnar um Veru Stanhope njóta mikilla vinsælda víða um heim, ekki síst eftir gerð velheppnaðra sjónvarpsþátta sem m.a. hafa verið sýndir hér á landi.

Þórdís Bachmann þýddi.

„Æsispennandi og snjöll ráðgáta ... meistaraleg frásagnarlist.“ – Globe and Mail

Hin myrku djúp er enn ein sígilda glæpasagan í nútímalegum búningi eftir Ann Cleeves ... Haglega spunnin ráðgáta.“ – Sunday Telegraph

„Frábær lesning sem fangar algerlega umhverfið og andrúmsloftið.“ – Time Out

„Drungaleg og athyglisverð skáldsaga þrungin tilfinningakrafti.“ – Spectator

„Enginn er Ann Cleeves fremri í að skapa undiröldu sem kemur úr jafnvægi.“ – Val McDermid

Kilja – 288 bls.

Útgáfuár: 2016