Fjölmiðlar 2004 <br><small><i>Ólafur Teitur Guðnason</i></small></p>

Fjölmiðlar 2004
Ólafur Teitur Guðnason

Translation missing: is.products.product.regular_price
Uppseld
Translation missing: is.products.product.sale_price
2.499 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Áhrif fjölmiðla eru mikil, en lengst af hafa þeir búið við lítið sem ekkert faglegt aðhald. Á þessu varð markverð breyting í upphafi árs 2004 þegar Ólafur Teitur Guðnason hóf að skrifa vikulega fjölmiðlapistla í Viðskiptablaðið. Pistlar Ólafs eru snarpir og beinskeyttir og hafa vakið mikla athygli, enda hefur höfundurinn verið óhræddur við að taka kollega sína á beinið.

Hér er öllum fjölmiðlapistlum Ólafs Teits árið 2004 safnað saman. Svo mjög fór gagnrýni Ólafs Teits fyrir brjóstið á íslenskri blaðamannastétt að enginn ritdómur birtist um bókina í hinum hefðbundnu fjölmiðlum.

Er óhætt að segja að Fjölmiðlar 2004 bregði upp einstakri mynd af blaðamennsku á Íslandi á viðburðaríku ári. Í bókinni eru rakin ítarlega fjölmörg dæmi um undarleg, hæpin, vafasöm og ámælisverð vinnubrögð fréttamanna.

Engum sem les þessa bók getur dulist að fjölmiðlum veitir sjálfum ekki af því aðhaldi sem þeim er ætlað að sýna öðrum.

Kilja – 352 bls.

Útgáfuár: 2006