Alein<br><small><i>Mary Higgins Clark</i></small></p>

Alein
Mary Higgins Clark

Translation missing: is.products.product.regular_price
3.999 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
3.999 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Gimsteinafræðingurinn Celia Kilbride fer í siglingu með lúxusfarþegaskipinu Queen Charlotte. Hún vill forðast sviðsljósið eftir að unnusti hennar er handtekinn fyrir fjármálasvindl rétt fyrir fyrirhugað brúðkaup. Um borð í skipinu ríkir kátína og glaðværð en ekki er allt sem sýnist. Sumir samferðamennirnir sigla undir fölsku flaggi. Einn daginn finnst stórrík vinkona Celiu myrt og dýrmætt hálsmen hennar er horfið. Celia er staðráðin í að finna morðingjann en brátt kemur í ljós að hún sjálf er í mikilli lífshættu.

Drottning spennusagnanna í toppformi!

Pétur Gissurarson þýddi.

„Meistari háspennunnar.“ – The New Yorker

„Einstakur sögumaður.“ – The Washington Post

„Hræddi líftóruna úr mér“ – Guardian

Kilja – 335 bls.

Útgáfuár: 2019