
Adda trúlofast er sjöunda bókin í sígildum bókaflokki eftir verðlaunahöfundana Jennu og Hreiðar.
Öddu-bækurnar eru meðal vinsælustu barna- og unglingabóka sem hafa komið út á Íslandi. Þær eru bráðskemmtilegar aflestrar og skrifaðar á vönduðu máli.
Bækurnar eru prýddar teikningum Halldórs Péturssonar.
Adda er langt komin með menntaskólanámið og vinnur á sjúkrahúsi í heimabyggð sinni í sumarleyfum. Þar endurnýjar hún kynni sín við lækninn Pál — og ástin kviknar í brjóstum þeirra.
Innbundin – 96 bls.
Útgáfuár: 2014