
Adda í kaupavinnu er fimmta bókin í sígildum bókaflokki eftir verðlaunahöfundana Jennu og Hreiðar.
Öddu-bækurnar eru meðal vinsælustu barnabóka sem hafa komið út á Íslandi. Þær eru bráðskemmtilegar aflestrar og skrifaðar á vönduðu máli sem öll börn skilja.
Bækurnar eru prýddar sígildum teikningum Halldórs Péturssonar.
Eftir fermingu er Adda send í sveit um sumarið. Foreldrar hennar koma henni fyrir í kaupavinnu á prestsetri langt frá bænum. Þar kynnist Adda meðal annars kaupakonunni Fjólu, ráðskonunni Haflínu og vinnumönnunum Jósúa og Helga. Margt skemmtilegt drífur á dagana.
Innbundin – 96 bls.
Útgáfuár: 2012