Vigdís Jack <br><small><i> Gyða Skúladóttir Flinker </i></small></p>

Vigdís Jack
Gyða Skúladóttir Flinker

Translation missing: is.products.product.regular_price
6.999 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
6.999 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

SVEITASTELPAN SEM VARÐ PRESTSFRÚ

Eiginkona, mamma, amma, langamma, systir, vinkona, barnakerling, vinnuþjarkur, ævintýramenneskja, Dísa, Munda, Mrs. Jack. - Þetta eru aðeins nokkur af þeim nöfnum sem fylgt hafa Vigdísi Jack á langri og fjölbreyttri ævi.

Vigdís fæddist í torfbæ og var alin upp við sjálfsþurftarbúskap þar sem trú á álfa og huldufólk þótti sjálfsögð. Bíl og rafmagnsljós sá hún fyrst níu ára gömul. Tuttugu og sjö ára naut hún þess í fyrsta sinn að búa við rennandi vatn úr krana og fyrsta ísskápinn fékk á heimili sitt þegar hún var um fertugt. Hún varð und ráðskona hjá prestinum í Grímsey, séra Róberti Jack. Hann var ekkill og gekk Vigdís börnum hans í móðurstað. Rúmum áratug síðar voru börnin á heimilinu orðin tíu. Vigdís var prestsfrú í meira en þrjá áratugi, lengst af á Tjörn á Vatnsnesi en líka í Vesturheimi. Hl´æyja Vigdísar og festa settu svip sinn á stórt og fjölmennt heimili hennar. Þar var í mörg horn að líta og fáar frístundir gáfust en eftir að hún fór á eftirlaun hefur hún notið lífsins og ferðast víða um heim.

Einlæg og lifandi frásögn um viðburðaríka ævi á miklum breytingatímum. Í lífi Vigdísar Jack hafa sannarlega skipst á skin og skúrir, en upp úr stendur æðruleysi, umhyggja og ævintýraþrá einstakrar dugnaðarkonu.

Innb. – 240 bls.

Útgáfuár: 2020