{"product_id":"velgjan-br-small-i-jean-paul-sartre-i-small-p","title":"Velgjan \u003cbr\u003e\u003csmall\u003e\u003ci\u003e Jean-Paul Sartre\u003c\/i\u003e\u003c\/small\u003e\u003c\/p\u003e","description":"\u003cp\u003eÍ þessari nafntoguðu skáldsögu segir frá ungum manni, Antoine Roquentin, sem virðist eiga í nokkrum brösum með eigin tilveru. Í áhrifaríkum dagbókarfærslum skráir hann óvægið tilﬁnningar sínar og skynjanir. Upphaﬂega átti verkið að heita La Melancholie eða Þunglyndið, en útgefandanum leist ekki á blikuna og stakk upp á \u003cem\u003eVelgjunni\u003c\/em\u003e í staðinn. Eftir sem áður er nóg af þunglyndi í verkinu og þá helst af ætt „heimshryggðar“ (Weltschmerz) sem á til að sækja á unga menn sem ekkert amar að, einskonar lúxusdepurð. Fyrir vikið er í \u003cem\u003eVelgjunni\u003c\/em\u003e að ﬁnna margar athuganir sem eiga erindi við æskufólk sem „tíminn vill ei tengja sig við“, þar á meðal er upplifunin fræga sem tengist rótum kastaníutrésins í skemmtigarðinum og hefur fengið áþekkan sess í bókmenntavitund Frakka og magðalenukakan hjá Marcel Proust.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ePétur Gunnarsson íslenskaði og ritaði inngang.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan lang=\"IS\"\u003eJean-Paul Sartre (1905-1980) var tvímælalaust kunnasti höfundur Frakka á tuttugustu öld, heimspekingur, bókmenntafræðingur, skáldsagnahöfundur, smásagnahöfundur, leikskáld og einhver mesti áhrifamaður í frönsku stjórnmála- og menningarlifi á sinni tíð. Meðal kunnustu verka hans eru heimspekiritin \u003ci\u003eL´être et le néant \u003c\/i\u003eog \u003ci\u003eCritique de la raison dialectique, \u003c\/i\u003eskáldsögurnar \u003ci\u003eVelgjan\u003c\/i\u003e og \u003ci\u003eLes Chemins de la Liberté\u003c\/i\u003e (Vegir frelsisins), fjögurra binda skáldsagnabálkur sem út kom á árunum 1945–1949. Að auki var Sartre mikilvirkt leikskáld, en meðal verka sem sett hafa verið upp eftir hann hérlendis má nefna \u003ci\u003eFangana í Altona\u003c\/i\u003e, \u003ci\u003eFlekkaðar hendur\u003c\/i\u003e og \u003ci\u003eLokaðar dyr\u003c\/i\u003e. Árið 1964 kom út sjálfsævisagan \u003ci\u003eLes Mots\u003c\/i\u003e(Orðin), en það ár voru Sartre veitt Nóbelsverðlaunin í bókmenntum sem hann hafnaði. Hann lést árið 1980 og er talið að um 50 þúsund manns hafi fylgt honum til grafar um götur Parísarborgar, fjölmennasta líkfylgd síðan Victor Hugo leið. \u003c\/span\u003e\u003cspan lang=\"IS\"\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan lang=\"IS\"\u003ePétur Gunnarsson (f. 1947) er einn kunnasti rithöfundur þjóðarinnar. Að loknu stúdentsprófi\u003cspan\u003e  \u003c\/span\u003elagði hann stund á í heimspeki í Frakklandi, jafnframt ritstörfum. Hann hefur sent frá sér á annan tug skáldsagna, ljóðabækur, ævisögur, hugleiðingar, greinar og pistla, rit af sjálfsævisögulegum toga, sönglagatexta og þýðingar, auk efnis fyrir útvarp og sjónvarp. Meðal þekktari verka hans eru ljóðabókin \u003ci\u003eSplunkunýr dagur\u003c\/i\u003e, skáldsögurnar \u003ci\u003ePunktur punktur komma strik\u003c\/i\u003e, \u003ci\u003ePersónur og leikendur\u003c\/i\u003e, \u003ci\u003eHversdagshöllin\u003c\/i\u003e og \u003ci\u003eMyndin af heiminum\u003c\/i\u003e, sem og hinar nýstárlegu ævisögur \u003ci\u003eÞÞ - Í fátæktarlandi \u003c\/i\u003eog\u003ci\u003e ÞÞ – Í forheimskunarlandi\u003c\/i\u003e. Um þessar mundir vinnur hann að hliðstæðu verki um Halldór Laxness og hefur \u003ci\u003eHKL – ástarsaga\u003c\/i\u003e þegar litið dagsins ljós. Pétur hefur sömuleiðis verið mikilvirkur þýðandi fagurbókmennta á borð við \u003ci\u003eFrú Bovary\u003c\/i\u003e eftir Gustave Flaubert, \u003ci\u003eLeiðina til Swann\u003c\/i\u003e eftir Marcel Proust, \u003ci\u003eRegnskógabeltið raunamædda\u003c\/i\u003e eftir Claude Lévi-Strauss og\u003ci\u003e Játningarnar\u003c\/i\u003e eftir Jean-Jacques Rousseau.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eInnbundin\u003c\/strong\u003e – 281 bls.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÚtgáfuár: 2026\u003c\/p\u003e","brand":"Ugla útgáfa","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67653106991178,"sku":null,"price":5299.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0223\/0412\/9098\/files\/Velgjan.jpg?v=1791648395","url":"https:\/\/uglautgafa.is\/products\/velgjan-br-small-i-jean-paul-sartre-i-small-p","provider":"Ugla útgáfa","version":"1.0","type":"link"}