{"product_id":"nnisblod-veidimanns-kilja-br-small-i-ivan-turgenev-i-small-p","title":"Minnisblöð veiðimanns – Kilja \u003cbr\u003e\u003csmall\u003e\u003ci\u003e Ívan Túrgenev \u003c\/i\u003e\u003c\/small\u003e\u003c\/p\u003e","description":"\u003cp class=\"Default\"\u003e\u003cstrong\u003e\u003cspan lang=\"EN-GB\"\u003eÍslensku þýðingaverðlaunin 2026\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"Default\"\u003e\u003cspan lang=\"EN-GB\"\u003eSkáldjöfurinn Ívan Túrgenev kynntist snemma bágum kjörum rússneskra bænda og miskunnarleysi þeirra sem réðu yfir þeim. Hann ólst upp á landareign móður sinnar, sem þótti með eindæmum óvægin og grimm, en hún hafði yfir að ráða meira en fimm þúsund „sálum“ eins og ánauðugir bændur voru gjarnan nefndir. Reynsla Túrgenevs úr uppvextinum varð honum innblástur í þessa bók, \u003ci\u003eMinnisblöð veiðimanns\u003c\/i\u003e, sem kemur nú út í fyrsta sinn á íslensku.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"Default\"\u003e\u003cspan lang=\"EN-GB\"\u003eÍ \u003ci\u003eMinnisblöðum veiðimanns\u003c\/i\u003e ferðast sögumaður um sveitir Rússlands og hittir landeigendur, ráðsmenn, bændur og bóndakonur auk annarra minnisstæðra persóna. Hann lýsir þessu fólki með raunsönnum og eftirminnilegum hætti en sagan er þó ekki síður óður til rússneskrar náttúru – birkiskóganna og sveitarinnar. \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"Default\"\u003e\u003cspan lang=\"EN-GB\"\u003eÞegar bókin kom út árið 1852 var Túrgenev handtekinn og sendur í útlegð á ættaróðal sitt. Bókin er þó sögð hafa haft mikil áhrif á Aleksander II. Rússakeisara en það var hann sem steig loks það afdrifaríka skref að aflétta bændaánauðinni árið 1861.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"Default\"\u003e\u003cspan lang=\"EN-GB\"\u003eÁslaug Agnarsdóttir íslenskaði og ritaði eftirmála.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"Default\"\u003e\u003cspan lang=\"EN-GB\"\u003e„Stórtíðindi á íslenskum bókamarkaði. Ein af unaðslegustu perlum heimsbókmenntanna og þýðing Áslaugar Agnarsdóttur er sannkallað afrek.“ – Gyrðir Elíasson\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"Default\"\u003e\u003cspan\u003eÍvan Sergejevítsj Túrgenev (1818–1883) var af aðalsætt og fæddist á landareign foreldra sinna, Spasskoje-Lútovínovo, fyrir sunnan Moskvu. Nítjánda öldin var umfram allt öld skáldsögurnar í rússneskum bókmenntum, höfunda á borð við Dostojevskí og Tolstoj auk Túrgenevs. Túrgenev var talinn fremstur þeirra meðan hann lifði og var auk þess sá sem var best þekktur í Vestur-Evrópu. \u003c\/span\u003e\u003cspan class=\"rynqvb\"\u003e\u003cspan lang=\"IS\"\u003eFy rsta skáldverk hans sem vakti athygli, \u003ci\u003eMinnisblöð veiðimanns\u003c\/i\u003e, kom út árið 1852 og markaði tímamót í rússnesku raunsæi.\u003c\/span\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan class=\"hwtze\"\u003e\u003cspan lang=\"IS\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003eFrægasta verk hans er skáldsagan \u003ci\u003eFeður og synir \u003c\/i\u003esem komið hefur út í íslenskri þýðingu, en eftir hann liggja sjö skáldsögur, um það bil tugur leikrita og mörg styttri verk. Túrgenev bjó lengi í Þýskalandi og Frakklandi þar sem hann lést.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan lang=\"IS\"\u003eÁslaug Agnarsdóttir starfaði um árabil sem bókavörður á Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni jafnframt því að vera stundakennari og prófdómari í rússnesku við Háskóla Íslands. Meðal þýðinga hennar úr rússnesku má nefna \u003ci\u003eBernsku, Æsku og Manndómsár\u003c\/i\u003e eftir Lev Tolstoj, smásagnasöfnin \u003ci\u003eSögur frá Rússlandi\u003c\/i\u003e og \u003ci\u003eSögur frá Sovétríkjunum\u003c\/i\u003e, \u003ci\u003eDauðann og mörgæsina\u003c\/i\u003e og \u003ci\u003eGráar býflugur\u003c\/i\u003e eftir Andrej Kúrkov, \u003ci\u003eBréfabók\u003c\/i\u003e eftir Míkhaíl Shíshkín og \u003ci\u003eFerðatöskuna\u003c\/i\u003e eftir Sergej Dovlatov. Áslaug hlaut Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu árið 2023.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong style=\"font-size: 0.875rem;\"\u003eInnb.\u003c\/strong\u003e\u003cspan style=\"font-size: 0.875rem;\"\u003e – 525 bls.\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÚtgáfuár: 2026\u003c\/p\u003e","brand":"Ugla útgáfa","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":43509586329674,"sku":null,"price":5499.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0223\/0412\/9098\/files\/MinnisblodveidimannsKILJAFRAMAN.jpg?v=1775991063","url":"https:\/\/uglautgafa.is\/products\/nnisblod-veidimanns-kilja-br-small-i-ivan-turgenev-i-small-p","provider":"Ugla útgáfa","version":"1.0","type":"link"}