Nágrannavarsla <br><small><i> Unni Lindell</i></small></p>

Nágrannavarsla
Unni Lindell

Translation missing: is.products.product.regular_price
4.299 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
4.299 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Hvaða hættur kunna að leynast í garði nágranna þíns? Er einhver í húsinu við hliðina sem á að standa autt?

Sonja Jansen er ein heima að lesa undir próf. Hún hefur tekið að sér að vökva fyrir nágrannann í rólegu úthverfi. Hún verður vör við umgang í húsinu og hringir í lögregluna.

Lögreglumaðurinn Lydia Winther, sem kölluð er Snö, kemur á vettvang ásamt félaga sínum. Þær verða ekki varar við neitt grunsamlegt sem gefur tilefni til að aðhafast og hverfa á braut. En Snö finnur innra með sér að ekki er allt með felldu. Nokkru síðar snýr hún aftur en þá er Sonja horfin.

Þegar Snö hefur leitina að Sonju fléttast gamalt fjölskylduleyndarmál inn í málið sem smám saman verður ógnvænlegra og teygir jafnvel anga sína inn í norska olíuiðnaðinn.

Snjólaug Bragadóttir þýddi.

UNNI LINDELL er sannkölluð glæpasagnadrottning Noregs. Hún hefur tvívegis hreppt hin virtu Riverton-verðlaun í Noregi og vinsælar sjónvarpsmyndir hafa verið gerðar eftir sögum hennar sem m.a. hafa verið sýndar á RÚV.

 * * * * *

„Þegar Lindell tekst best upp er lesandinn eins og límdur við blaðsíðurnar. Þetta leika fáir glæpahöfundar eftir ... Meistaralegar spennubókmenntir.“ Adresseavisen

„Unni Lindell leikur sér að lesandanum á fimlegan hátt.“ Dagens Næringsliv

„Unni Lindell skrifar frábærlega vel og lýsingar hennar og persónusköpun rista djúpt.“ Trønder-Avisa

Kilja – 410 bls.

Útgáfa: 2022