Það hófst með leyndarmáli <br><small><i> Jill Mansell</i></small></p>

Það hófst með leyndarmáli
Jill Mansell

Translation missing: is.products.product.regular_price
Uppseld
Translation missing: is.products.product.sale_price
3.999 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Öll leyndarmál hafa afleiðingar ...

Lainey er í vanda stödd. Sem betur fer tekst henni að hreppa draumastarfið. En til þess þurfti hún að hagræða sannleikanum dálítið (jæja, talsvert mikið). Starfið felst í því að skipuleggja og sjá um flókið líf og starf leikara á efri árum og fjölskyldu hans.

Ekkert er fjarri henni á þessum tímapunkti í lífi hennar en að verða ástafangin. Þó verður hún að viðurkenna að Seth, barnabarn leikarans, er fremur aðlaðandi. Þau laðast hvort að öðru. En hvernig myndi hann bregðast við ef hann vissi að hún hafði ekki verið heiðarleg við hann?

Lainey er þó ekki sú eina sem geymir með sér leyndarmál – eins og brátt kemur í ljós ...

Enski verðlaunahöfundurinn Jill Mansell hefur selt meira en 11 milljónir eintaka af bókum sínum – og er óhætt að segja að hún sé einn allra vinsælasti höfundur rómantískra skáldsagna í heiminum.

Snjólaug Bragadóttir þýddi.

Jill Mansell – Drottning hinna ljúfu og hrífandi ástarsagna. – Red Online

* * * * * „Hjartnæm og einstaklega hlý og notaleg.“ – Sophie Kinsella

„Hin fullkomna ástarsaga sem fær þig til að brosa og dreyma um langa sumardaga á ströndinni.“ – Woman & Home

Kilja – 377 bls.

Útgáfuár: 2021