Hið undarlega mál Jekylls og Hydes <br><small><i> Robert Louis Stevenson </i></small></p>

Hið undarlega mál Jekylls og Hydes
Robert Louis Stevenson

Translation missing: is.products.product.regular_price
2.999 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
2.999 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Lundúnaborg á síðari hluta nítjándu aldar. Á yfirborðinu ríkir siðprýði Viktoríutímans en í skjóli nætur lætur ofbeldisfullur maður að sér kveða. Ekkert er vitað um hann nema nafnið eitt: Hyde.

Hver er hann? Lögfræðingurinn Utterson tekur sér fyrir hendur að komast að því. Honum til furðu reynist Hyde vera kunningi virðulegs vinar, læknisins Henrys Jekyll. Honum verður svo ekki um sel þegar Jekyll tekur upp hanskann fyrir Hyde og neitar að fordæma gjörðir hans.

En þegar frá líður og ofbeldisverkin verða að miskunnarlausu morði neyðist Jekyll læknir til að horfast í augu við staðreyndir ...

Eitt af meistaraverkum breskra bókmennta.

Skotinn Robert Louis Stevenson (1850–1894) var afkastamikill rithöfundur á síðari hluta nítjándu aldar. Eftir hann liggja frægar skáldsögur, smásögur, ljóð og ritgerðir. Árið 1883, þegar hann var rúmfastur vegna berklaveiki, orti hann einn vinsælasta ljóðabálk fyrir börn sem komið hefur út í Bretlandi, A Child´s Garden of Verses. Meðal þekktustu skáldsagna hans eru Fjársjóðseyjan (Treasure Island), Í  ræningja höndum (Kidnapped) og þessi bók, Hið undarlega mál Jekylls og Hydes.

Árni Óskarsson þýddi.

„Dýrlegasta bók Stevensons.“ – Vladimir Nabokov

Kilja – 121 bls.

Útgáfuár: 2021