Dularmögn <br><small><i> Dean Koontz </i></small></p>

Dularmögn
Dean Koontz

Translation missing: is.products.product.regular_price
4.299 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
4.299 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Í GÆR VAR SNOWFIELD Í KALIFORNÍU AÐLAÐANDI LÍTILL BÆR ÞAR SEM BÆJARBÚAR NUTU LÍFSINS Í GULLINNI SÍÐDEGISSÓL. Í DAG RÁÐA MARTRAÐIR ÞAR RÍKJUM.

Ævagamalt ógnarafl hefur numið á brott næstum alla íbúa bæjarins og skilið lík annarra eftir, afkáralega afskræmd. Hvaða von eiga þeir örfáu sem enn lifa?

Mögnuð háspennusaga sem fær hárin til að rísa á höfði lesandans.

Dean Koontz er einn þekktasti spennusagnahöfundur heims. Bækur hans hafa selst í yfir 500 milljónum eintaka og verið þýddar á um 40 tungumál.

Helgi Magnússon þýddi.

„Lýsingar Koontz minna á Dickens og fáir skáldsagnahöfundar standast honum snúning í að fá okkur til fletta í ofvæni einni síðunni eftir aðra.“ – Los Angeles Times

„Koontz kann þá list að sannfæra lesandann um hið ómögulega ... komið ykkur vel fyrir og njótið.“ – Sunday Telegraph

„Ljóðrænn stílsmáti og sannfærandi persónusköpun ... það er enginn sem stenst Koontz snúning.“ – Associated Press

„Hlaðin spennu – alvöru spennu.“ – New York Times

„[Dean Koontz] stjórnar ekki aðeins myrkustu draumum okkar – hann er líka sjónhverfingamaður í sagnagerð.“ – The Times

Kilja – 598 bls.

Útgáfuár: 2023