{"product_id":"dottir-dyjakongs-br-small-i-birgitta-trotzig-i-small-p","title":"Dóttir dýjakóngs \u003cbr\u003e\u003csmall\u003e\u003cI\u003eBirgitta Trotzig \u003c\/i\u003e\u003c\/small\u003e\u003c\/p\u003e","description":"\u003cp\u003eUng kona sem búið hefur í foreldrahúsum í litlu þorpi fer alfarin að heiman því hún hefur kynnst manni. En honum fylgir eyðingarmáttur sem verður henni örlagaríkur og birtist á ný í dóttur þeirra og enn síðar dóttursyni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÁhrifarík skáldsaga um hve fólki reynist erfitt að tengjast og festa rætur á umbrotatímum. Í ljóðrænum myndum er stórra spurninga spurt um vald og svik, sekt og fyrirgefningu, um leitina að merkingu og skilyrðislausri ást.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHeimir Pálsson íslenskaði og ritaði eftirmála.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEftir útkomu þessarar bókar árið 1985 voru Birgittu Trotzig veitt Pilot-verðlaunin svonefndu. Í rökstuðningi dómnefndar sagði: „Með töfrandi og seiðandi stíl sínum hefur Birgitta Trotzig víkkað mörk hins ósegjanlega … Þrjátíu og fimm ára höfundarferill hennar nær hámarki í Dóttur dýjakóngs.“\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eRithöfundurinn og skáldið Birgitta Trotzig (1929–2011) er meðal mikilvægustu rithöfunda Svíþjóðar á síðari hluta tuttugustu aldar. Hún fæddist í Gautaborg, eina barn kennarahjóna. Hún stundaði um hríð nám í bókmenntum en fór síðan að skrifa fyrir blöð og tímarit. Hún giftist listamanninum Ulf Trotzig og bjuggu þau í París á árunum 1955–1969. Þar snerist hún til kaþólskrar trúar. Birgitta Trotzig var margverðlaunuð fyrir bækur sínar og var kjörin í Sænsku akademíuna árið 1993. Dóttir dýjakóngs er ein þekktasta skáldsaga hennar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp style=\"font-weight: 400;\"\u003e\u003cspan\u003e\u003cstrong\u003eKilja\u003c\/strong\u003e – 344 bls.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp style=\"font-weight: 400;\"\u003e\u003cstrong style=\"font-size: 1.4em;\"\u003e\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003eÚtgáfuár: 2026\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Ugla útgáfa","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":44137621225546,"sku":null,"price":4799.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0223\/0412\/9098\/files\/DottirdyjakongsFRAMAN.jpg?v=1788127759","url":"https:\/\/uglautgafa.is\/products\/dottir-dyjakongs-br-small-i-birgitta-trotzig-i-small-p","provider":"Ugla útgáfa","version":"1.0","type":"link"}