Úti við laugar <br><small><i>Sophie Daull</i></small></p>

Úti við laugar
Sophie Daull

Translation missing: is.products.product.regular_price
3.499 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
3.499 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Skáldkona kemur fram í sjónvarpi í tilefni af útkomu fyrstu bókar hennar. Andlit hennar á skjánum kemur manni nokkrum úr jafnvægi. Hann lifir fábreyttu lífi í bænum Nogent-le-Rotrou eftir að hafa afplánað fangelsisdóm fyrir glæp sem hann framdi fyrir þrjátíu árum. Nú þarf hann óvænt að horfast í augu við fortíð sína á ný. Skáldkonan er nefnilega dóttir fórnarlambs hans. Og hún er væntanleg til bæjarins að kynna bók sína ...

Meistaralega vel ofin saga um tilfinningarót og eðli fyrirgefningar.

Sophie Daull býr í Montreuil í Frakklandi. Úti við laugar er þriðja skáldsaga hennar og hreppti meðal annars bókmenntaverðlaun Evrópusambandsins árið 2019.

Jóna Dóra Óskarsdóttir þýddi.

Kilja – 163 bls.

Útgáfuár: 2021