Skuggi ástarinnar <br><small><i> Mehmed Uzun </i></small></p>

Skuggi ástarinnar
Mehmed Uzun

Translation missing: is.products.product.regular_price
3.499 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
3.499 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Skuggi ástarinnar er jafnan talið höfuðverk kúrdíska rithöfundarins Mehmeds Uzuns.

Baksvið skáldsögunnar er uppreisn Kúrda við Ararat gegn Tyrkjum á árunum 1927–1930, en hún var skipulögð af Khoyboun-hreyfingunni undir forystu Memduhs Selîms sem er aðalpersóna bókarinnar.

Í örlagasögu þessa útlæga kúrdíska menntamanns og frelsisbaráttumanns endurspeglast jafnframt örlög Kúrda, saga undirokaðrar þjóðar og baráttu hennar fyrir að halda í menningu sína, tungu og réttindi.

Memduh Selîm stendur frammi fyrir sígildri glímu – milli persónulegrar hamingju og hugsjóna, milli ástar til stúlkunnar sem hann elskar og ástarinnar til þjóðar sinnar.

Áhrifarík og ljóðræn söguleg skáldsaga um grimm örlög og sterkar ástríður.

Einar Steinn Valgarðsson þýddi bókina og ritaði eftirmála.

„Þetta er skáldsaga sem hreyfir við manni, þvert á öll menningarleg landamæri.“

Aftonbladet

„Sagan fjallar um allt sem hægt er að óska sér: rætur í veruleikanum og ævintýri, sterkar tilfinningar og stórar hugsanir, húmor og visku. Þetta er ekkert minna en harmaljóð Kúrdanna, sálmur um hetjur, skráð af dengbêj nútímans.“ Svenska Dagbladet

„Sagan varpar upp svo fögrum myndum að lesandinn getur varla slitið sig frá töfrum hennar ... Skuggi ástarinnar er meistaraverk.“ – Yasar Kemal

Kilja – 294 bls.

Útgáfuár: 2021