Nornadrengurinn <br><small><i>Lone Theils</i></small></p>

Nornadrengurinn
Lone Theils

Translation missing: is.products.product.regular_price
4.299 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
4.299 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Lík finnst í kirkjugarði í London. Það er af nígerískum prófessor sem hafði verið myrtur með dýrslegum hætti. Skömmu áður hafði hann átt fund með Noru Lind, dönskum fréttaritara í London. Nora er sannfærð um að morðið tengist frægu skilnaðarmáli danskrar raunveruleikastjörnu og rússnesks auðmanns sem berjast um forræði yfir syni þeirra.

Leitin að sannleikanum leiðir Noru inn í myrka kima Lundúnaborgar þar sem hún kynnist meðal annars svartagaldri. Í sama mund koma fram brestir í sambandi hennar við Andreas.

Bækurnar um Noru Sand hafa slegið í gegn víða um heim. Nornadrengurinn er þriðja bókin sem kemur út á íslensku. Hinar tvær, Stúlkurnar á Englandsferjunni og Kona bláa skáldsins, fengufrábærar viðtökur íslenskra lesenda.

Lone Theils var lengi fréttaritari dönsku blaðanna Politiken og Berlingske Tidende í London, en býr nú í Danmörku.

„Æsispennandi og skemmtilegur krimmi sem er alveg sér á parti.“ – KRIMIHJERTE

„Lone Theils verður betri og betri með hverri bók.“– KRIMINORD

Kilja – 294 bls.

Útgáfuár: 2022