Ótti markmannsins við vítaspyrnu <br><small><i> Peter Handke </i></small></p>

Ótti markmannsins við vítaspyrnu
Peter Handke

Translation missing: is.products.product.regular_price
3.999 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
3.999 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Ótti markmannsins við vítaspyrnu er ein frægasta bók Nóbelsverðlaunahöfundarins Peters Handke og hefur öðlast sess sem klassískt verk í evrópskum nútímabókmenntum.

Í bókinni segir frá fyrrverandi markmanni sem telur sig hafa verið rekinn úr vinnunni. Hann fremur morð og ráfar síðan eirðarlaus um í litlum austurrískum landamærabæ. Höfundur nýtir sér form glæpasögunnar en þó með öfugum formerkjum. Örvænting söguhetjunnar endurspeglast í frásagnarmátanum sem er í senn ljóðrænn og harmrænn og ristur rúnum sundrandi heims.

Franz Gíslason íslenskaði en Jón Bjarni Atlason bjó þýðinguna til prentunar og ritaði eftirmála um höfundinn og verk hans.

„Handke varð vandræðabarn evrópsku framúrstefnunnar þegar hann fordæmdi alla félagslega, sálfræðilega og sögulega reynslu sem svik og pretti tungumálsins. En bækur hans hafa staðist tímans tönn ... og hann er nú almennt álitinn einn mikilvægasti rithöfundur þýskrar tungu.“ – The New York Times

Kilja – 152 bls.

Útgáfuár: 2020