Þjóð í hafti <br><small><I>Jakob F. Ásgeirsson</i></small></p>

Þjóð í hafti
Jakob F. Ásgeirsson

Translation missing: is.products.product.regular_price
3.499 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
3.499 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Þekkir þú sögu haftaáranna? Þegar öll verslun á Íslandi var hneppt í svo harðar viðjar að ekki mátti flytja bók til landsins án þess að biðja yfirvöld um leyfi? Þegar ávextir sáust ekki árum saman og fólk stóð næturlangt í biðröðum í von um að geta keypt sér eitt par af bomsum? Þegar innflutningsleyfi fyrir bílum gengu kaupum og sölum fyrir hærra verð en sjálfur bíllinn kostaði? Þegar menn voru fangelsaðir fyrir að reisa sér bílskúr í óþökk yfirvalda? Þegar ríkið rak prentsmiðju og vélsmiðju og setti á fót ótal einkasölur – viðtækjaeinkasölu, bifreiðaeinkasölu, raftækjaeinkasölu og grænmetiseinkasölu? Þegar pólitísk spilling grasséraði, smygl og svartamarkaður – og voldug hagsmunasamtök risu upp úr öllum áttum til að tryggja hlut sinn í haftakerfinu?

Í þessari bók segir Jakob F. Ásgeirsson sögu haftaáranna á einstaklega læsilegan hátt. Bókin kom fyrst út árið 1988 og hefur lengi verið ófáanleg.

Kilja – 308 bls.

Útgáfuár: 2008