Og nú ertu kominn aftur <br><small><i>Jill Mansell</i></small></p>

Og nú ertu kominn aftur
Jill Mansell

Translation missing: is.products.product.regular_price
4.499 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
4.499 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Töfrandi kvöld í Feneyjum. Didi verður ástfangin upp fyrir haus – en ástmaðurinn lætur sig hverfa án þess að kveðja.

Þrettán árum síðar hittir Didi hann aftur. Enn er líf í glóðum ástarinnar en Didi er staðráðin í að láta ekki afvegaleiðast. Hún er hótelstýra á frábæru hóteli í Cotswolds á Englandi, hamingjusöm og farin að undirbúa brúðkaupið sitt.

En erfitt reynist að halda tilfinningunum í skefjum. Og gömul leyndarmál setja óvænt strik í reikninginn ...

Enski verðlaunahöfundurinn Jill Mansell hefur selt meira en 13 milljónir eintaka af bókum sínum – og er einn allra vinsælasti höfundur ljúflestrarbóka í heiminum.

Snjólaug Bragadóttir íslenskaði.

„Eins og lítil sólskinsbomba – upplífgandi, hugljúf og einstaklega notaleg.“ – Sophie Kinsella

„Grípandi og með ólíkindum notaleg.“ – Marian Keyes

* * * * * „Stórkostleg, dásamleg lesning með persónum sem maður elskar og samsamar sig við.“ – Molly Johnson

Kilja – 367 bls.

Útgáfuár: 2024